Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mán 16. nóvember 2015 15:30
Magnús Már Einarsson
Zilina í Slóvakíu
Jóhann Berg: Ég er betur settur á kantinum
LG
Borgun
Jóhann Berg í viðtali í dag.
Jóhann Berg í viðtali í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
„Nú er ég alveg eins og nýr. Ég er klár núna," sagði Jóhann Berg Guðmundsson léttur í bragði í samtali við Fótbolta.net í dag.

Jóhann Berg kom inn á undir lokin í 4-2 tapinu gegn Pólverjum en hann byrjaði ekki leikinn eftir að hafa verið að glíma við meiðsli.

Jóhann er vanalega á kantinum hjá landsliðinu en hann kom inn á í fremstu víglínu fyrir Jón Daða Böðvarsson gegn Pólverjum.

„Ég held að ég sé betri á kantinum. Ég get spilað frammi líka en ég held að ég sé betur settur á kantinum," sagði Jóhann.

Jóhann segir ekkert annað koma til greina en sigur á morgun eftir fjóra leiki í röð án sigurs.

„Þetta er orðið alltof langt. Við þurfum að rífa okkur í gang og vinna leikinn á morgun. Þó að þetta sé vináttuleikur þá viljum við að sjálfsögðu vinna alla leiki," sagði Jóhann.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner