Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 16. nóvember 2017 17:30
Magnús Már Einarsson
Alberto Moreno hættur að hugsa bara um að sækja
Moreno hefur komið öflugur til baka.
Moreno hefur komið öflugur til baka.
Mynd: Getty Images
Alberto Moreno hefur unnið sér sæti í vinstri bakverðinum hjá Liverpool á nýjan leik eftir að hafa verið úti í kuldanum á síðasta tímabili.

Moreno segir að hugarfarsbreyting hafi átt sér stað hjá sér í sumar. Hann hafi einbeitt sér meira að varnarleiknum en áður.

„Síðasta ár var gott fyrir mig til að hugsa um og breyta hlutum. Ég sagði við sjálfan mig: 'Alberto, hvað getur þú gert betur?"

„Það fyrsta sem kom upp í hugann var að verjast. Ég er varnarmaður. Ég hef breytt þessu. Ég er einbeittari og ég held að það sjáist. Sem betur fer hef ég ekki gert mörg mistök."

„Á fyrstu árunum hjá mér hjá Liverpool var ég alltaf að hugsa: 'sækja, sækja, sækja.' Sjálfstraust er mikilvægt fyrir fótboltamenn en ég er líka búinn að aðlagast betur. Ég er einbeitari og hugsa: 'Byrjum á því að verjast og halda hreinu, síðan get ég farið fram."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner