Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 16. nóvember 2017 08:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Pellegrino: Van Dijk einbeittur fyrir Liverpool leikinn
Dijk vildi fara til Liverpool í sumar. Um helgina mætir hann Liverpool
Dijk vildi fara til Liverpool í sumar. Um helgina mætir hann Liverpool
Mynd: Getty Images
Mauricio Pellegrino, stjóri Southampton segir að varnarmaður liðsins, Virgil van Dijk, sé 100% einbeittur fyrir komandi leik gegn Liverpool um helgina.

Liverpool vildu ólmir fá Dijk til liðsins í sumar og vildi Hollendingurinn sjálfur fara til Bítlaborgarinnar en Southampton stóðu fastir á sínu og leyfðu varnarmanninum ekki að fara.

Southampton hafa misst marga leikmenn til Liverpool á undanförnum árum en þetta sumarið sögðu þeir stopp.

Liverpool þurftu að biðjast afsögunar í sumar en Southampton sakaði félagið um að tala ólöglega við Dijk en hann er samningsbundinn Southampton.

„Ég held að það verði ekki erfitt fyrir Dijk að spila leikinn því ég veit að hann er 100% einbeittur á okkar lið og hefur æft vel," sagði Pellegrino
Athugasemdir
banner
banner
banner