Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 16. nóvember 2017 06:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Pique og Ramos uppáhalds varnarmenn Boateng
Mynd: Getty Images
Jerome Boateng, varnarmaður Bayern Munchen segir að Sergio Ramos og Gerard Pique séu meðal uppáhalds varnarmanna hans.

Boateng, sem er 29 ára er sjálfur einn af sterkustu varnarmönnum heims í dag en hann er lykilmaður hjá Bayern og þýska landsliðinu.

Hann hefur orðið heimsmeistari, unnið Meistaradeild Evrópu og þýsku úrvalsdeildina fimm ár í röð.

„Sergio Ramos er ekki aðeins bestur vegna allra titlanna, hann skorar einnig mikilvæg mörk," sagði Boateng um Spánverjann.

„Spánn er einnig með Gerard Pique og þá er Diego Godin frábær og hefur verið stórkostlegur með Atletico Madrid og Úrúgvæ."
Athugasemdir
banner
banner
banner