fim 16. nóvember 2017 06:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Szczesny skrifaði ástarlag fyrir eiginkonu sína
Pólverjinn er lunkinn í textagerð
Pólverjinn er lunkinn í textagerð
Mynd: Getty Images
Fyrrum markvörður Arsenal, Pólverjinn Wojciech Szczesny er ekki aðeins lunkinn í marki, heldur er hann öflugur lagahöfundur.

Szczesny er giftur Marina Luczenko sem er fræg poppstjarna í Póllandi og á komandi plötu hennar má finna lagið I Do.

I Do er skrifað af sjálfum Szczesny en hann er markvörður hjá Juventus í dag.

Szczesny segir frá því þegar honum leiddist eitt kvöldið og kona hans var að spila nýja tónlist, komu fram textar frá Szczesny og líkaði Luczensko það líka svona vel.

„Hún tók það upp, og við breyttum laginu smá en textarnir eru mínir!" sagði Szczesny

„Þetta er ástarlag. Ég verð að segja að ég er mjög væminn gaur. Ég held að þetta hafi verið flott."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner