Tim Sherwood, sérfræðingur Sky, telur að Joe Gomez sé besti miðvörðurinn í herbúðum Liverpool.
Hinn tvítugi Gomez hefur aðallega leikið í hægri bakverði hjá Liverpool á meðan Dejan Lovren, Joel Matip og Ragnar Klavan hafa verið í hjarta varnarinnar.
Hinn tvítugi Gomez hefur aðallega leikið í hægri bakverði hjá Liverpool á meðan Dejan Lovren, Joel Matip og Ragnar Klavan hafa verið í hjarta varnarinnar.
Sherwood hreifst af frammistöðu Gomez í þriggja manna vörn Englendinga gegn Brasilíu á þriðjudag.
„Ef þú myndir spyrja mig hver væri besti miðvörðurinn hjá Liverpool í augnablikinu þá myndi ég segja Joe Gomez," sagði Sherwood.
„En mun hann fá að spila á undan öðrum leikmönnum? Ég held að hann fái takmarkaðan spiltíma í þessari stöðu."
Athugasemdir