Titi Camara, sem gerði 9 mörk í 33 deildarleikjum fyrir Liverpool, skaut á stuðningsmann Everton og David Unsworth, þjálfara liðsins, á Twitter.
Jamie Carragher var með í skotinu því hann endurtísti orðum fyrrverandi samherja sins.
Jamie Carragher var með í skotinu því hann endurtísti orðum fyrrverandi samherja sins.
Camara skrifaði í gríni að hann væri hissa á því að enginn hafi talað við sig í sambandi við stjórastarfið hjá Everton. Stuðningsmaður Everton svaraði honum með góðu skoti en Camara var snöggur að svara.
„Ég er hissa á að enginn hafi orðað mig við eða boðið mér starfið hjá Everton," skrifaði Titi.
„Við erum ekki það örvæntingarfullir, getum ekki ráðið ömurlegan útbrunninn knattspyrnumann," svaraði Roy, stuðningsmaður Everton.
„Er það ekki það sem þið eruð með núna?" sagði Titi og skaut þannig á Unsworth sem er tímabundið við stjórnvölinn.
Surprised I've not been linkedapproached for the vacant manager's post at Everton.
— Titi Camara (@TitiCamara22) November 16, 2017
We’re not that desperate lad 😂 can’t be having a shite washed up footballer.
— Roy (@scouse_Everton) November 16, 2017
Isn't that what you have now? 🦏
— Titi Camara (@TitiCamara22) November 16, 2017
Athugasemdir