Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   lau 16. desember 2017 16:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
HM félagsliða: Pachuca landaði 3. sætinu
Mynd: Getty Images
Al Jazira 1 - 4 Pachuca
0-1 Jonathan Matías Urretaviscaya ('37)
1-1 Khalfan Mubarak Al Shamsi ('57)
1-2 Franco Daniel Jara ('60)
1-3 Roberto Carlos De La Rosa ('79)
1-4 Angel Sagal ('84, víti)

Pachuca frá Mexíkó tók bronsið á HM félagsliða en leikurinn um 3. sætið fór fram í Abú Dabí í dag.

Pachuca komst yfir þegar lítið var eftir af fyrri hálfleiknum og staðan var 1-0 í hálfleik.

Al Jazira, sem var á heimavelli, jafnaði á 57. mínútu. Staðan var hins vegar ekki 1-1 lengi því Franco Daniel Jara kom Pachuca aftur yfir þremur mínútum síðar.

Pachuca bætti við tveimur mörkum til viðbótar áður en leiknum lauk og staðan þegar dómarinn flautaði af var 4-1.

Pachucha tekur því bronsið. Á eftir kemur í ljóst hvort Real Madrid eða Gremio verður heimsmeistari.
Athugasemdir
banner
banner