Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 16. desember 2017 14:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ndidi fékk rautt á afmælisdaginn
Mynd: Getty Images
Wilfred Ndidi, miðjumaður Leicester, hélt upp á 21. afmælisdaginn sinn með því að spila fótboltaleik í ensku úrvalsdeildinni, Leicester gegn Crystal Palace fyrir framan fullt af stuðningsmönnum Leicester.

Ndidi átti flottan leik á miðjusvæðinu, alveg fram á 62. mínútu þegar honum var vísað af velli.

Ndidi féll í teignum og fékk sitt annað gula spjald fyrir meintan leikaraskap.

Ekki alveg afmælisdagurinn sem Ndidi vildi, en Leicester tapaði líka leiknum 3-0.

Sjá einnig:
England: Palace skellti Leicester í hádegisleiknum




Athugasemdir
banner
banner