Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 16. desember 2017 20:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stuðningsmenn Bristol City búnir að semja lag um Hörð Björgvin
Mynd: Twitter
Hörður Björgvin Magnússon átti góðan leik þegar Bristol City lagði Nottingham Forest í Championship-deildinni í dag.

Bristol komst í 2-0, Forest minnkaði muninn í 2-1 en komst ekki lengra og sigur Bristol því staðreynd.

Hörður byrjaði og spilaði allan leikinn, en hann er í uppáhaldi hjá stuðningsmönnum félagsins sem eru búnir að semja lítið stef um Íslenska varnarmanninn.

Lagið er "parody-útgáfa" af laginu Mrs. Robinson sem Simon & Garfunkel gerðu vinsælt. Lagið kom fyrir í myndinni The Graduate með Dustin Hoffman.

Texti stuðningsmanna Bristol City er svohljóðandi: „Here’s to you, Hordur Magnusson. City loves you more than you will know."

Myndband af stuðningsmönnum Bristol að syngja lagið má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner