Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. desember 2017 17:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wenger: Mark Özil var stórkostlegt
Mynd: Getty Images
„Þegar á heildina er litið áttum við sigurinn skilið," sagði Arsene Wenger eftir 1-0 sigur á Newcastle í dag.

„Við vorum með yfirburði en þetta var erfitt þar sem þetta var okkar þriðji leikur á sex dögum."

Sigurmark Arsenal gerði Þjóðverjinn Mesut Özil og það er ekki hægt að segja annað en að það hafi verið stórglæsilegt.

Smelltu hér til að sjá markið.

„Mark Özil var stórkostlegt. Hann skorar mikilvæg mörk. Þetta var frábært mark, sagði Wenger. „Stundum vinnum við ekki þegar við spilum vel, það var mikilvægt að vinna í dag."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner