Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 16. desember 2017 11:00
Ingólfur Stefánsson
Zidane: Salah er frábær leikmaður
Mynd: Getty Images
Zinadine Zidane þjálfari Real Madrid segist hafa mikið álit á Mohamed Salah sóknarmanni Liverpool.

Salah sem gekk til liðs við Liverpool í sumar hefur átt frábært tímabil. Hann hefur skorað 19 mörk í 25 leikjum í vetur. Sögusagnir eru strax komnar á kreik um að Real Madrid hafi áhuga á leikmanninum.

Zidane var spurður út í Salah á fréttamannafundi fyrir leik Real Madrid í heimsmeistarakeppni félagsliða.

„Salah er frábær leikmaður. Hann sannaði það hjá Roma og nú hjá Liverpool. Ég vill ekki tala mikið um leikmenn annarra liða en Salah er leikmaður sem ég hef mikið álit á."

Real Madrid varð Spánar- og Evrópumeistari á síðasta tímabili en hefur ekki átt jafn gott tímabil í ár. Karim Benzema sóknarmaður liðsins hefur verið gagnrýndur en Zidane er ósammála þeim sem gagnrýna hann.

„Mörk eru ekki það eina sem skiptir máli. Benzema er frábær
leikmaður fyrir liðið. Hann mun kannski ekki skora 50-60 mörk á tímabili en hann skorar samt fullt af mörkum."

Athugasemdir
banner
banner
banner