Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 17. janúar 2018 21:54
Gunnar Logi Gylfason
Enski bikarinn: Wigan valtaði yfir Bournemouth
Leikmenn Wigan fagna í kvöld.
Leikmenn Wigan fagna í kvöld.
Mynd: Getty Images
Tveimur leikjum er lokið í ensku bikarkeppninni en það er framlenging í gangi hjá Chelsea og Norwich þar sem staðan er 1-1 eftir jöfnunarmark frá Norwich á 94. mínútu.

Wigan lék sér að Bournemouth í óvæntum 3-0 sigri á úrvalsdeildarliðinu þar sem Wigan menn gerðu út um leikinn á nokkurra mínútna kafla í seinni hálfleik.

Swansea sigraði svo Wolves 2-1 þar sem Jordan Ayew og Bony skoruðu mörk heimamanna en Diogo Jota skoraði mark gestanna.

Wigan 3-0 Bournemouth
1-0 Sam Morsy ('9)
2-0 Daniel Burn ('73)
3-0 Callum Elder ('76)

Swansea 2 - 1 Wolves
1-0 Jordan Ayew ('11)
1-1 Diogo Jota ('66)
2-1 Wilfried Bony ('69)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner