Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. janúar 2018 13:30
Magnús Már Einarsson
Manchester City reynir við Fred
Mynd: Getty Images
Manchester City hefur áhuga á að fá Fred, miðjumann Shakhtar Donetsk, í sínar raðir en Sky greinir frá þessu í dag.

City vill fá hinn 24 ára gamla Fred til að taka stöðu Fernandinho í framtíðinni en sá síðarnefndi verður 33 ára á þessu ári.

Manchester City hefur hætt við að fá Alexis Sanchez frá Arsenal og nú þykir líklegast að félagið styrki miðjuna í þessum mánuði og reyni að fá Fred.

City gæti keypt Fred í þessum mánuði og lánað hann síðan aftur til Shakhtar fram á sumar.

Fred mætti Manchester City í Meistaradeildinni fyrir áramót.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner