Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. janúar 2018 15:00
Magnús Már Einarsson
Tosun þakkar Gylfa fyrir góðar móttökur
Tosun spilaði sinn fyrsta leik með Everton gegn Tottenham um síðustu helgi.
Tosun spilaði sinn fyrsta leik með Everton gegn Tottenham um síðustu helgi.
Mynd: Getty Images
Cenk Tosun, nýr framherji Everton, sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag. Tosun kom til Everton frá Besiktas á 27 milljónir punda á dögunum.

Tosun þakkaði Gylfa Þór Sigurðssyni og fleiri leikmönnum Everton sérstaklega fyrir góðar móttökur.

„Þetta gæti hljómað eins og klisja en allir liðsfélagarnir hafa verið frábærir fyrir mig. Þeir hafa komið mjög vingjarnlega fram við mig," sagði Tosun.

„Þeir hafa allir tekið mér vel. Ef ég á að nefna einhver nöfn sérstaklega þá hefur Wayne Rooney verið frábær fyrir mig, Sigurðsson og fyrirliðinn Jagielka."

Gylfi og Tosun hafa mæst nokkrum sinnum undanfarin ár en Ísland var með Tyrklandi í riðli í undankeppni EM 2016 og í undankeppni HM.
Athugasemdir
banner
banner