Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. febrúar 2017 09:42
Magnús Már Einarsson
Wenger: Verð stjóri á næsta ári, hér eða annars staðar
Ekki að hætta í boltanum.
Ekki að hætta í boltanum.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segist ekki vera farinn að íhuga að hætta í boltanum. Hann segir þó ekki öruggt að hann starfi áfram hjá Arsenal á næsta tímabili.

Hinn 67 ára gamli Wenger er með samning við Arsenal út þetta tímabil en hann hefur stýrt liðinu frá 1996.

Eftir 5-1 tap gegn Bayern í Meistaradeildinni í vikunni hafa margir stuðningsmenn Arsenal kallað eftir því að Wenger hætti.

„Hvað sem gerist þá verð ég stjóri á næsta tímabili. Hvort sem það verður hér eða annarsstaðar," sagði Wenger á fréttamannafundi í dag.

„Þetta félag verður áfram í öruggum höndum. Hvort sem það verður hjá mér eða einhverjum öðrum."
Athugasemdir
banner