Sheffield Wed 0 - 0 Swansea
Swansea þarf að mæta Sheffield Wednesday aftur í enska bikarnum eftir að liðin gerðu jafntefli í dag.
Swansea er í ensku úrvalsdeildinni og hefur verið á uppleið þar á meðan Wednesday er í 15. sæti Championship-deildarinnar.
Það var jafnfræði með liðunum og voru úrslitin nokkuð sanngjörn. Nokkur færi litu dagsins ljós en ekkert var skorað.
Liðin þurfa því að mætast aftur á Liberty-vellinum í Swansea.
Þetta var þriðji leikur 16-liða úrslitanna en í gær komust Leicester og Chelsea áfram. Þrír aðrir leikir eru í dag.
Leikir dagsins:
15:00 West Brom - Southampton (Stöð 2 Sport)
15:00 Brighton - Coventry (Stöð 2 Sport 3)
17:30 Huddersfield - Manchester United (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir