Maccabi Tel Aviv 0 - 1 Hapoel Ra'anana
0-1 Roi Zikri ('28)
0-1 Roi Zikri ('28)
Viðar Örn Kjartansson og félagar í Maccabi Tel Aviv þurftu að sætta sig við tap gegn Hapoel Ra'anana í deild þeirra bestu í Ísrael í dag.
Viðar Örn, sem er næst markahæsti leikmaður deildarinnar með tíu mörk, var í byrjunarliði Maccabi að venju en honum tókst ekki að klafsa neitt út úr þessum leik fyrir sitt lið.
Eina markið kom á 28. mínútu og var það Roi Zikri sem gerði það fyrir gestina, sem eru í 11. sæti deildarinnar.
Maccabi sótti stíft og var mikið með boltann en það er ekki það sem telur, það eru mörkin sem telja.
Maccabi Tel Aviv er á toppi deildarinnar en líklegt er að liðið falli af toppi deildarinnar eftir þetta tap.
Athugasemdir