Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 17. febrúar 2018 21:39
Gunnar Logi Gylfason
Spánn: Dramatík í Malaga
Coquelin skoraði jöfnunarmark Valencia
Coquelin skoraði jöfnunarmark Valencia
Mynd: Getty Images
Nú eru öllum leikjum dagsins lokið í La Liga.

Alaves vann mikilvægan heimasigur á Deportivo La Coruna þar sem Munir El Haddadi, fyrrum leikmaður Barcelona, skoraði eina mark leiksins. Með þessum sigri er Alaves komið tíu stigum frá fallsæti og léttir pressunni örlítið af sér.

Gestirnir eru hins vegar í verri málum og sitja í næst neðsta sæti. Þó eru aðeins þrjú stig upp í öruggt sæti.

Í Malaga tók neðsta lið deildarinnar á móti Valencia. Heimamenn byrjuðu betur og komust yfir eftir tæpan hálftíma og voru yfir allt þar til Francis Coquelin, fyrrum leikmaður Arsenal, jafnaði leikinn á 80.mínútu. Fjórum mínútum varð útlitið dökkt fyrir heimamenn þegar Ignasi Miquel fékk rautt spjald og Daniel Parejo skoraði úr víti í kjölfarið.

Malaga er í vondum málum í neðsta sæti deildarinnar, sjö stigum frá öruggu sæti.

Gestirnir frá Valencia eru hins vegar í þriðja sæti, fjórum stigum á undan Real Madrid, sem á þó tvo leiki til góða.

Alaves 1 - 0 Deportivo La Coruna
1-0 Munir El Haddadi (61')

Malaga 1 - 2 Valencia
1-0 Brown Ideye (27')
1-1 Francis Coquelin (80')
1-2 Daniel Parejo, víti (85')
Rautt spjald: Ignasi Miquel, Malaga (84')

Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 31 24 6 1 67 20 +47 78
2 Barcelona 31 21 7 3 62 34 +28 70
3 Girona 31 20 5 6 63 39 +24 65
4 Atletico Madrid 31 19 4 8 59 36 +23 61
5 Athletic 31 16 9 6 51 29 +22 57
6 Real Sociedad 31 13 11 7 45 33 +12 50
7 Valencia 31 13 8 10 34 32 +2 47
8 Betis 31 11 12 8 38 37 +1 45
9 Getafe 31 9 12 10 37 43 -6 39
10 Villarreal 31 10 9 12 49 54 -5 39
11 Osasuna 31 11 6 14 36 44 -8 39
12 Las Palmas 31 10 7 14 29 35 -6 37
13 Sevilla 31 8 10 13 39 44 -5 34
14 Alaves 31 8 8 15 26 38 -12 32
15 Mallorca 31 6 13 12 25 36 -11 31
16 Vallecano 31 6 13 12 25 38 -13 31
17 Celta 31 6 10 15 33 46 -13 28
18 Cadiz 31 4 13 14 21 41 -20 25
19 Granada CF 31 3 8 20 32 60 -28 17
20 Almeria 31 1 11 19 30 62 -32 14
Athugasemdir
banner
banner
banner