lau 17. febrúar 2018 19:00
Gunnar Logi Gylfason
„Þú munt klúðra"
Mynd: Getty Images
Englandsmeistarar Chelsea slógu Hull út í bikarnum eftir 4-0 stórsigur á Brúnni í gærkvöldi. Öll mörk liðsins komu í fyrri hálfleik.

Í byrjun seinni hálfleiks braut Cesc Fabregas af sér innan eigin vítateigs og var réttilega dæmt víti. David Meyler tók vítið sem Willy Caballero, markvörður Chelsea, varði.

Áður en Meyler tók vítið sagði Willian, sem skoraði tvö mörk í leiknum, „þú munt klúðra," við hann, sem varð raunin.

„Ég sagði: ekki skjóta í miðjuna því Willy hreyfir sig ekki, hann stendur bara, þegar hann klúðraði sagði ég „ég sagði þér það,"" sagði Brasilíumaðurinn að lokum.

Með sigrinum komst Chelsea áfram í 8-liða úrslit í enska bikarnum.
Athugasemdir
banner
banner