Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 17. febrúar 2018 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Vona að hann finni sér fallega kærustu til að njóta ásta með"
Gattuso er að gera flotta hluti.
Gattuso er að gera flotta hluti.
Mynd: Getty Images
AC Milan hefur verið á góðu róli undir stjórn Gennaro Gattuso. Eftir freka hæga byrjun undir hans stjórn hefur liðið núna ekki tapað í níu leikjum í röð, enginn leikur hefur tapast hjá Gattuso síðan á Þorláksmessu gegn Atalanta á heimavelli.

Gattuso, sem er fyrrum leikmaður AC Milan, er mjög ánægður hvernig lífið er að fara með hann í augnablikinu.

„Ég er til í að vera hér eins lengi og ég mögulega get," segir Gattuso. „Ég er þakklátur fyrir tækifærið og ef það er möguleiki fyrir mig að vera hér áfram, þá verð ég hér áfram."

Milan tekur á móti Sampdoria í Seríu A á morgun. Gattuso sat þjálfaranámskeið með Marco Giampaolo, þjálfara Sampdoria.

„Ég lýg ekki, ég stal mörgum hugmyndum af Giampolo. Hann er mjög góður þjálfari og ég er áhyggjufullur þar sem ég veit að við getum ekki gert nein mistök í þessum leik."

Hinn tvítugi Patrick Cutrone hefur verið að skora í síðustu leikjum Milan. Hann heldur sæti sínu í liðinu á morgun.

„Hann er ungur, setjum ekki of mikla pressu á hann. Patrick þarf að leggja mikið á sig á vellinum og slaka á utan hans. Vonandi finnur hann sér fallega kærustu til að njóta ásta með."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner