Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fös 17. mars 2017 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikarinn C-deild: GG með sigur á Vatnaliljum
Óli Baldur var á meðal markaskorara hjá GG.
Óli Baldur var á meðal markaskorara hjá GG.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lengjubikarinn - C-deild karla, Riðill 4
Vatnaliljur 3 - 4 GG
1-0 Victor Páll Sigurðsson ('20 )
1-1 Sjálfsmark ('31 )
1-2 Óli Baldur Bjarnason ('38 )
2-2 Victor Páll Sigurðsson ('41, víti )
2-3 Nathan Ward ('67 )
2-4 Davíð Arthur Friðriksson ('90 )
3-4 Hörður Ingþór Harðarson ('90 )

Það eru úrslit komin úr einum af þeim leikjum sem fram fóru í C-deild Lengjubikars karla í kvöld. Vatnaliljur og GG áttust við í Fagralundi.

Vatnaliljur byrjuðu betur og komust yfir eftir 20 mínútur. GG svaraði með tveimur mörkum, en Vatnaliljum tókst að jafna fyrir leikhlé.

Í seinni hálfleiknum kom Nathan Ward liði GG í 3-2 áður Davíð Arthur Friðriksson gerði fjórða markið undir lokin. Vatnaliljum tókst að minnka muninn, en það var ekki nóg.

Lokatölur í þessum fjöruga leik, 4-3 fyrir GG, sem er núna á toppi Riðils 4 í C-deildinni með fjögur stig. Vatnaliljur eru með þrjú stig.

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner