Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 17. mars 2017 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Owen í ruglinu - Hélt að Liverpool hefði unnið Evrópudeildina
Michael Owen ruglaðist aðeins...
Michael Owen ruglaðist aðeins...
Mynd: Getty Images
Fyrrum fótboltamaðurinn Michael Owen starfar núna sem sérfræðingur í sjónvarpi. Hann hefur vakið mikla athygli í því starfi þar sem hann er vanur að segja hina augljósustu hluti.

Owen var sérfræðingur hjá BT Sport í gær. Þar var fjallað um leik Manchester United og Rostov í Evrópudeildinni.

Það vantaði aðeins upp á staðreyndirnar hjá Owen í gær, en hann hélt því fram að Liverpool hefði unnið Evrópudeildina á síðasta tímabili. Liverpool komst í úrslit, en þar töpuðu þeir gegn Sevilla.

„Það er erfitt að vinna þessa keppni. Þú lítur á Liverpool, sem vann keppnina á síðasta tímabili, en þeir þurftu að spila við mörg góð lið á leið í úrslitin," sagði Owen.

Liverpool komst yfir í úrsltaleiknum gegn Sevilla og voru með forystu í leikhlé, en í seinni hálfleiknum komu þeir spænsku til baka og unnu að lokum með þremur mörkum gegn einu.

Hér að neðan má sjá myndband af þessu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner