Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. mars 2017 21:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Tæpur Aubameyang tryggði Dortmund sigur
Aubameyang skoraði sigurmark Dortmund.
Aubameyang skoraði sigurmark Dortmund.
Mynd: Getty Images
Borussia D. 1 - 0 Ingolstadt
1-0 Pierre-Emerick Aubameyang ('14 )

Pierre-Emerick Aubameyang er mjög mikilvægur fyrir Borussia Dortmund. Hann var á skotskónum þegar liðið vann nauman sigur á fallbaráttuliði Ingolfstadt í eina leik kvöldsins í þýska boltanum.

Aubameyang var fyrir leik talinn tæpur vegna meiðsla. Hann var þó í byrjunarliðinu og voru væntanlega margir stuðningsmenn Dortmund sem glöddust þá, enda er hann þeirra helsti markaskorari.

Gabonmaðurinn sinnti sínu hlutverki og skoraði eina mark leiksins eftir 14 mínútur. Hann gerði sér svo lítið fyrir og kláraði leikinn þrátt fyrir að hafa verið að glíma við meiðsli.

Lokatölur urðu 1-0 fyrir Dortmund og mikilvægur sigur þeirra staðreynd. Dortmund er með 46 stig í þriðja sæti, en Ingolfstadt er í næst neðsta sætinu, sjö stigum frá öruggu sæti.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner