Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 17. mars 2018 07:00
Ingólfur Stefánsson
Alderweireld valinn í belgíska hópinn
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Toby Alderweireld er í belgíska landsliðshópnum sem mætir Saudi Arabíu í vináttuleik síðar í mánuðinum.

Alderweireld hefur einungis tvisvar spilað með Tottenham síðan í nóvember þrátt fyrir að hafa lýst því yfir að hann sé búinn að jafna sig af meiðslum.

Mauricio Pochettion stjóri liðsins segir að hann vilji ekki láta Alderweireld spila of mikið til þess að vernda feril leikmannsins.

Framherjinn Michy Batshuayi er einnig í hópnum eftir góða byrjun á ferli sínum hjá Dortmund. Ekkert pláss er fyrir Christian Benteke framherja Crystal Palace í hópnum.

Þá er miðjumaðurinn Radja Nainggolan í hópnum á ný eftir að hafa tekið út agabann.
Athugasemdir
banner
banner
banner