lau 17. mars 2018 23:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Salah: Án þessara liðsfélaga væri ég aldrei búinn að skora svona mikið
Salah er markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar.
Salah er markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar.
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah var í miklu stuði þegar Liverpool mætti Watford í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Salah sem skoraði fjögur mörk í leiknum og lagði upp eitt þakkaði fyrir sig í viðtali eftir leikinn.

„Ég get ekki annað gert en að þakka fyrir mig, sérstaklega vil ég þakka liðsfélögum mínum, án þeirra væri ég aldrei búinn að skora svona mikið."

„Í öllum leikjum reynum við að ná í stigin þrjú, og í öllum leikjum vil ég skora og hjálpa liðinu. En í dag var mikilvægast að fá stigin þrjú."

„Það var gott að ná í sigur í dag eftir úrslitin síðustu helgi. Þetta voru góð úrslit og við héldum hreinu, það er það sem skiptir máli," sagði Salah að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner