Arsenal var dregið gegn CSKA Moskva í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í gær.
Stuðningsmenn Arsenal eru varaðir við því að elta liðið til Rússlands vegna mikillar spennu sem er á milli þjóðanna eftir að Bretar hafa sakað Rússa um að eitra fyrir fyrrverandi njósnaranum Sergei Skripal og dóttur hans Yuliu.
Stuðningsmenn enska félagsins eru varaðir við áreitni Rússana í garð Breta ef þeir fylgja liðinu.
Rússar og Englendingar slógust einnig mikið á götum Frakklands á EM 2016 og er mikill rígur á milli þjóðanna.
Fyrri leikur liðanna fer fram í Englandi þann 5. apríl en sá seinni viku síðar, þann 12 apríl, í Rússlandi.
Athugasemdir