Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   lau 17. mars 2018 09:30
Ingólfur Stefánsson
Tottenham ætla að verðlauna Son með nýjum samning
Mynd: Getty Images
Tottenham stefna á að hefja samningaviðræður við Heung-Min Son á næstu vikum.

Son hefur verið í frábæru formi á tímabilinu og Spurs stefna á að verðlauna leikmanninn með nýjum samningi.

Son er á góðri leið með að skora yfir 20 mörk annað tímabilið í röð en hann hefur skorað 18 mörk í 43 leikjum á tímabilinu. Þar með talið 7 mörk í síðustu 4 leikjum.

Núverandi samningur Son, sem er 25 ára, gildir út árið 2020.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner