Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 17. apríl 2014 18:00
Daníel Freyr Jónsson
Jack Colback getur valið úr liðum í sumar
Jack Colback er eftirsóttur.
Jack Colback er eftirsóttur.
Mynd: Getty Images
Jack Colback, leikmaður Sunderland, mun líklega yfirgefa félagið í sumar þegar samningur hans rennur út.

Þessi 24 ára gamli miðjumaður hefur átt í samningaviðræðum við félagið, samningar hafa ekki tekist og er allt útlit fyrir að slegist verði um hann í sumar.

Samkvæmt heimildum Sky Sports munu að minnsta kosti sex úrvalsdeildarlið vera tilbúin til að bjóða Colback samning þegar tímabilið klárast.

Colback heldur þó möguleikum sínum opnum og hyggst ætla að gefa Sunderland lokasvar þegar í ljós kemur hvort liðið haldi sæti sínu í deildinni eða ekki.

Á meðal þeirra liða sem hafa áhuga á Colback eru Everton, Hull og Newcastle.
Athugasemdir
banner
banner