Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 17. apríl 2014 12:23
Elvar Geir Magnússon
Umtalaðasta íþróttamynd ársins - Ronaldo huggaði Messi
Mynd: 101greatgoals
Oft hefur verið talað um að það andi köldu milli tveggja af bestu fótboltamönnum heims; Cristiano Ronaldo og Lionel Messi.

Messi og félagar í Barcelona töpuðu í gær fyrir Real Madrid í úrslitum spænska bikarsins.

Ronaldo var ekki með Real í leiknum vegna meiðsla en horfði á jakkafataklæddur og með derhúfu.

Eftir leikinn þá kom Ronaldo inn á völlinn til að fagna sigrinum en gaf sér þó tíma til að hugga keppinaut sinn, Lionel Messi.

Myndin hefur vakið mikla athygli. Það er þá kannski ekki eins slæmt milli þessara tveggja og haldið hefur verið fram?
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner