Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 17. apríl 2015 22:29
Brynjar Ingi Erluson
Carlo Ancelotti: Ég ætla í bíó
Carlo Ancelotti
Carlo Ancelotti
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid á Spáni, segist ætla að skella sér í bíó á meðan leikur Barcelona og Valencia fer fram á morgun.

Real Madrid mætir Malaga annað kvöld á meðan Barcelona mætir sterku liði Valencia en ítalski þjálfarinn er ekki með það á kortunum að horfa á Börsunga.

Barcelona er sem stendur í efsta sæti deildarinnar, tveimur stigum á undan á Madrídingum en Ancelotti ætlar að skella sér í bíó og vonast eftir því að Valencia nái að halda Börsungum í skefjum.

,,Ég ætla í bíó. Ég mun ekki horfa á Barcelona á morgun," grínaðist Ancelotti á blaðamannafundi í dag.

,,Öllu gríni slepptu þá erum við að undirbúa okkur fyrir okkar leik svo það verður erfitt að sjá leik Barcelona og Valencia en það verður áhugaverður leikur," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner