Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. apríl 2015 17:52
Elvar Geir Magnússon
„De Gea búinn að segja já við Real Madrid"
David de Gea í góðum gír.
David de Gea í góðum gír.
Mynd: Getty Images
David de Gea er búinn að segja já við Real Madrid. Þetta segir íþróttafréttamaðurinn Josep Pedrerol á spænsku sjónvarpsstöðinni La Sexta.

Real Madrid hefur í talsverðan tíma verið orðað við þennan spænska markvörð Manchester United sem verið hefur einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili.

„Markvörðurinn vill klæðast treyju Real Madrid frá og með næstu tímabili. Spænska stórliðið hefur skoðað ýmsa markverði en ákveðið að taka De Gea," segir Pedrerol.

Hann segir að eina sem þurfi sé samkomulag milli Real og United.
Athugasemdir
banner
banner
banner