Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 17. apríl 2015 18:00
Elvar Geir Magnússon
Líkleg byrjunarlið Chelsea og Man Utd
Líkleg byrjunarlið á Brúnni.
Líkleg byrjunarlið á Brúnni.
Mynd: Guardian
Síðasti leikur morgundagsins í ensku úrvalsdeildinni verður veisla. Chelsea mætir Manchester United á Stamford Bridge klukkan 16:30.

Chelsea trónir á toppnum og vonast til að Loic Remy verði klár í slaginn eftir að hafa misst af leiknum gegn QPR vegna meiðsla.

Diego Costa er enn fjarri góðu gamni en gæti komið aftur gegn Arsenal í næstu viku.

Louis van Gaal er án Michael Carrick, Daley Blind, Phil Jones og Marcos Rojo. Jonny Evans er í banni svo Chris Smalling, Paddy McNair og Tyler Blackett eru einu leikfæru miðverðirnir.

Af þeim sem vantar hjá United er líklegast að Carrick verði mest saknað þar sem liðið er með frábæra tölfræði með hann í byrjunarliðinu á tímabilinu.

Chelsea hefur ekki tapað í síðustu fjórum leikjum gegn United og aðeins fengið tvö mörk á sig.

Hér til hliðar má sjá líkleg byrjunarlið að mati Guardian.
Athugasemdir
banner
banner
banner