Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. apríl 2015 21:28
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Victor tryggði Levante stig gegn Espanyol
Leikmenn Espanyol töpuðu stigum undir lok leiks
Leikmenn Espanyol töpuðu stigum undir lok leiks
Mynd: Getty Images
Levante 2 - 2 Espanyol
0-1 Lucas ('18 )
1-1 Simao ('21 )
1-2 Felipe Caicedo ('45 )
2-2 Victor ('87 )

Levante og Espanyol gerðu 2-2 jafntefli í spænsku deildinni í kvöld en jöfnunarmarkið kom undir lok leiks.

Lucas kom gestunum í Espanyol yfir á 18. mínútu áður en Simao jafnaði þremur mínútum síðar.

Felipe Caicedo kom Espanyol aftur yfir undir lok fyrri hálfleiks og leit allt út fyrir að liðið myndi fagna sigri í kvöld en Victor hélt þó ekki og jafnaði undir lok leiks.

Lokatölur 2-2. Levante að ná í mikilvægt stig í fallbaráttunni en liðið er í sextánda sæti með 29 stig á meðan Espanyol er í áttunda sæti með 42 stig.
Athugasemdir
banner
banner