Undanúrslitaleikir enska bikarsins verða um helgina á Wembley en hér að neðan má sjá líkleg byrjunarlið í leikjunum tveimur.
Laugardagur 16:20 Reading - Arsenal
Sunnudagur 14:00 Aston Villa - Liverpool
Jack Wilshere hefur jafnað sig af ökklameiðslum og gæti leikið sinn fyrsta leik í nokkurn tíma. Mikel Arteta og Alex Oxlade-Chamberlain eru enn fjarverandi og Wojciech Szczesny verður í rammanum. Mathieu Debuchy gæti einnig komið við sögu en hann hefur verið frá síðan í janúar vegna ökklameiðsla.
Á sunnudag mætast Aston Villa og Liverpool. Daniel Sturridge, sóknarmaður Liverpool, er tæpur fyrir leikinn og Mamadou Sakho meiddur. Martin Skrtel og Steve Gerrard snúa aftur eftir leikbönn.
Athugasemdir