Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 17. apríl 2018 15:41
Elvar Geir Magnússon
Aguero fór í aðgerð - Í kapphlaupi til að ná leiknum gegn Íslandi
Aguero varð fyrir tæklingu frá Ashley Young.
Aguero varð fyrir tæklingu frá Ashley Young.
Mynd: Getty Images
Sergio Aguero spilar ekki meira með Manchester City á tímabilinu og er í kapphlaupi við tímann til að geta verið með argentínska landsliðinu á HM. Argentína á fyrsta leik gegn Íslandi í Moskvu þann 16. júní.

Aguero meiddist á hné í tapi City gegn Manchester United og þurfti að gangast undir aðgerð.

Á Twitter sagðist Aguero vera ákveðinn í því að vera orðinn klár í slaginn fyrir HM.

Þessi öflugi leikmaður hefur verið einn besti sóknarmaður ensku úrvalsdeildarinnar í vetur og hjálpað City að tryggja sér meistaratitilinn.


Athugasemdir
banner
banner