Þriðjudagurinn 17. apríl
18:45 Inter - Cagliari
18:45 Inter - Cagliari
Það er einn leikur á dagskrá ítölsku úrvalsdeildarinnar á þessu þriðjudagskvöldi.
Inter Milan fær Cagliari í heimsókn til Mílanó-borgar.
Inter byrjaði tímabilið vel en gengið hefur dalað mjög. Liðið er í hættu á að missa af Meistardeildarsæti en sem stendur er Inter í fimmta sæti, einu stigi frá Roma og Lazio sem er í þriðja og fjórða sæti.
Cagliari er í 14. sæti deildarinnnar og þetta er því gott tækifæri fyrir Inter að komast aftur á sigurbraut eftir að hafa mistekist að vinna í þremur deildarleikjum í röð.
Leikurinn í kvöld hefst klukkan 18:45.
Athugasemdir