Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 17. apríl 2018 14:00
Elvar Geir Magnússon
Joe Hart gert fleiri dýrkeypt mistök en aðrir til samans
Hart hefur gert fleiri mistök sem kostað hafa mörk en aðrir enskir markverðir til samans.
Hart hefur gert fleiri mistök sem kostað hafa mörk en aðrir enskir markverðir til samans.
Mynd: Getty Images
Sæti Joe Hart í HM hópnum hjá Englandi er talið í hættu eftir mistök hans í 1-1 jafntefli West Ham gegn Stoke í gær.

Hart varði boltann beint til Peter Crouch sem skoraði en Andy Carroll jafnaði svo fyrir West Ham.

Þetta voru fjórðu dýrkeyptu mistök Hart í búningi West Ham sem leiða beint til þess að andstæðingarnir skora.

Enginn enskur markvörður í ensku úrvalsdeildinni hefur gert fleiri mistök.

Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, var í stúkunni í leiknum í gær.

Hart er hjá West Ham á lánssamningi frá Manchester City en hefur átt erfitt tímabil í austurhluta London og missti sæti sitt í desember þegar David Moyes valdi frekar Adrian.

Hart mætti aftur í rammann í mars og hefur spilað 26 leiki í öllum keppnum fyrir West Ham á þessu tímabili.

Sjá einnig.
Segir Hart ekki eiga skilið að vera í HM hópnum
Athugasemdir
banner