Grindavík og Selfoss lönduðu sínum fyrstu sigrum í 1. deild karla í kvöld en bæði lið unnu á útivelli.
Selfoss heimsótti Víking Reykjavík og hafði betur 2-1. Ingólfur Þórarinsson og Magnús Ingi Einarsson skoruðu mörk gestanna áður en Igor Taskovic minnkaði muninn undir lok leiksins. Selfoss lauk leiknum einum leikmanni færri eftir að markaskorarinn Magnús Ingi fékk að líta sitt annað gula spjald fimm mínútum fyrir leikslok.

Þá vann Grindavík 1-0 sigur á Haukum en sigurmarkið skoraði Jordan Lee Edridge í fyrri hálfleik.
Því eru Grindavík og Selfoss komin með þrjú stig. Víkingur og Haukar eru einnig með þrjú stig eftir fyrstu tvo leikina.
Víkingur Reykjavík 1 - 2 Selfoss
0-1 Ingólfur Þórarinsson ('27)
0-2 Magnús Ingi Einarsson ('50)
1-2 Igor Taskovic ('88)
Rautt spjald: Magnús Ingi Einarsson, Selfoss ('85)
Haukar 0 - 1 Grindavík
0-1 Jordan Lee Edridge ('34)