Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 17. maí 2013 05:55
Sebastían Sævarsson Meyer
Leikir dagsins hér heima: Haukar - Grindavík sýndur beint
Kvenaboltinn
Breiðablik heimsækir Þrótt Reykjavík í Pepsi-deild kvenna.
Breiðablik heimsækir Þrótt Reykjavík í Pepsi-deild kvenna.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Nokkrir leikir eru á dagskrá hér á landi í dag þar sem þriðja umferð Pepsi-deild kvenna fer af stað og þá verður spilað í 1. og 2. deild karla. Auk þess rúllar 3. deildin af stað í dag.

Þróttur Reykjavík og Breiðablik eigast við í eina leik dagsins í Pepsi-deild kvenna en þetta er fyrsti leikur þriðju umferðar. Breiðablik er með sex stig eftir fyrstu tvo leikina en Þróttur er enn án stiga.

Í 1. deild karla fara tveir leikir fram. Haukar taka á móti Grindvíkingum og Víkingur Reykjavík fær Selfoss í heimsókn en báðir leikirnir hefjast klukkan 19:15.

Leikur Hauka og Grindavíkur verður sýndur í beinni vefútsendingu á SportTv.is en þar verður hægt að fylgjast með völdum leikjum í sumar.

HK og ÍR mætast í 2. deild karla og þá hefst 3. deildin með viðureign Kára og ÍH.

Pepsi-deild kvenna:
18:00 Þróttur R. - Breiðablik (Gervigrasvöllur Laugardal)

1. deild karla:
19:15 Haukar - Grindavík (Schenkervöllurinn)
19:15 Víkingur R. - Selfoss (Víkingsvöllur)

2. deild karla:
19:15 HK - ÍR (Kópavogsvöllur)

3. deild karla:
20:00 Kári - ÍH (Akraneshöllin)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner