Mario Balotelli, leikmaður AC Milan, segist vera feginn að hafa yfirgefið England og snúið aftur til heimalandsins í janúar.
,,Ég er mjög ánægður núna. Ég hef fjölskylduna og vini nálægt mer. Ég get slakað á og fæ frið, annað en á Englandi þar sem ég var aleinn," sagði Balotelli.
,,Ég er mjög ánægður núna. Ég hef fjölskylduna og vini nálægt mer. Ég get slakað á og fæ frið, annað en á Englandi þar sem ég var aleinn," sagði Balotelli.
Þessi 22 ára sóknarmaður hefur vakið mikla athygli í gegnum tíðina fyrir hin ýmsu uppátæki innan sem utan vallar sem rötuðu oftar en ekki í blöðin á Englandi.
Hann var á mála hjá Manchester City í tvö og hálft ár áður en hann fékk nóg og hélt til AC Milan þar sem getur fengið að njóta lífsins betur. Vildi hann meina að ensku götublöðin gerðu meira úr málunum en þurfti.
,,Ég er hrifinn af konum og ég held að það sé eðlilegt. Ég hef gaman að hraðskreiðum bílum og ég sé ekkert vandamál við það," hélt Balotelli áfram.
,,Það hefur margt gerst í mínu lífi og því miður hafa ákveðnir hlutir komið upp á sem rötuðu beint í blöðin. En ég sé ekkert sem gæti látið fólk halda að ég sé slæmur eða klikkaður. Ég er venjulegur gaur."
,,Þegar búið er til táknmynd af mannseskju með þessum hætti, þegar allir hafa hugmynd um hvernig þú ert og logið er í kringum það, þá halda allir að það sé satt. Svo þess vegna halda allir að ég sé klikkaður og geri fáranlega hluti."
,,En ég er ekki hér til að tala um hvort það hafi verið komið illa fram við mig. Mér er alveg sama. Ég er farinn frá Englandi og ég gleðst yfir því. Það er allt á sumt."


