Fótboltafélagið Brighton hefur sett Gustavo Poyet, knattspyrnustjóra sinn, í tímabundið bann ásamt aðstoðarmönnum hans. Bannið kemur til vegna ummæla í viðtali eftir að liðið féll úr leik gegn Crystal Palace í undanúrslitum um laust sæti í úrvalsdeildinni.
Poyet hefur verið stjóri Brighton í fjögur ár og er samningsbundinn félaginu til 2016.
Eftir tapið gegn Crystal Palace sagði hann við fjölmiðla að hann myndi eftir þessi úrslit skoða hvað hann eigi að gera og hvað félagið eigi að gera.
„Stundum er nauðsynlegt að hugsa um sjálfan sig. Á hverju sumri sest maður niður og veltir fyrir sér möguleikunum, hvert þú getur farið og hvert ekki. Hvort þú getir náð lengra í því verkefni sem þú ert með. Ég hef alltaf sagt að ég verði áfram hjá þessu félagi á meðan við getum náð lengra. Þann dag sem það er ekki hægt lengur er ég farinn," sagði Poyet.
Stjórnarmönnum Brighton þótti Poyet sýna félaginu óvirðingu með þessum orðum og verða þau tekin til skoðunar á næstu dögum. Á sama tíma fær Poyet ekki að koma nálægt höfuðstöðvum félagsins og æfingasvæði.
Poyet er meðal þeirra sem orðaðir eru við stjórastöðuna hjá Everton.



