Radamel Falcao, leikmaður Atletico Madrid, hefur blásið á alla orðróma sem tengja hann við bröttför frá spænska félaginu.
Kólumbíski markahrókurinn hefur undanfarið verið sterklega orðaður við Monaco og einnig hafa Chelsea og Real Madrid verið nefnd til sögunnar.
Kólumbíski markahrókurinn hefur undanfarið verið sterklega orðaður við Monaco og einnig hafa Chelsea og Real Madrid verið nefnd til sögunnar.
Falcao segist þó ekki vera á förum frá Atletico Madrid og minnir á að hann eigi enn þrjú ár eftir af samningi sínum.
,,Ég veit ekki neitt, það eina sem ég hugsa um er að halda áfram að einbeita mér að Atletico Madrid," sagði Falcao.
,,Ég held mér frá öllu sem verið er að tala um. Samkvæmt pressunni er ég þegar búinn að skipta yfir öll lið Evrópu, eins og Chelsea, Real Madrid og Manchester United."
,,Ég hef ekki fundið neinar fréttir sem segja sannleikann um mig. Ég er samningsbundinn til 2016 og allt annað eru bara vangaveltur. Ég veit ekkert um Monaco. Ég einbeiti mér að því þar sem ég er."
Falaco og félagar í Atletico Madrid mæta Real Madrid í úrslitaleik spænska Konungsbikarsins í kvöld.




