Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 17. maí 2013 14:00
Magnús Már Einarsson
Gary Martin: Hugsaði að ég myndi ekki skora í sumar
Gary Martin fagnar marki sínu í gær.
Gary Martin fagnar marki sínu í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Gary Martin, framherji KR, náði að opna markareikning sinn í Pepsi-deildinni í 3-0 sigri liðsins á Þór í gær. Gary er létt að hafa náð að skora fyrsta mark sumarsins.

,,Það er alltaf gott að skora mörk. Þegar þú ert framherji þá ertu meira af dæmdur af þeim en hversu hart þú leggur þig fram og hjálpar liðinu. Það var gott að ná fyrsta markinu og vonandi get ég haldið áfram á þessari braut á mánudag," sagði Gary við Fótbolta.net í dag.

Áður en Gary skoraði fór hann illa með dauðafæri. Gary vippaði yfir Josh Wicks en boltinn skoppaði síðan rétt fyrir framan marklínuna og fór yfir markið. Ótrúlegt atvik.

,,Ég átti hlaup inn á teiginn og Atli (Sigurjónsson) átti frábæra sendingu á mig. Ég sá að markvörðurinn kom á móti svo ég lyfti boltanum yfir hann og hélt að hann myndi fara inn. Ég ætlaði að fylgja boltanum yfir línuna, ég lét hann skoppa og einhverneginn skoppaði hann yfir slána."

,,Ég hugsaði þá með sjálfum mér að ég myndi ekki skora í sumar og ég ætti kannski frekar að gerast bakvörður eða kantmaður. Ég hélt samt áfram og markið kom að lokum."


KR er á toppnum með fullt hús stig og Gary er bjartsýnn á gott gengi hjá liðinu í sumar.

,,Þú verður að vera bjartsýnn og hafa trú á sjálfum þér og liðinu. Við erum með 9 stig eftir þrjá leiki og eigum stórleik á mánudag. Rúnar var mjög klókur þegar hann tók lykilmenn út af til að hvíla þá og við eigum líka lykilmenn sem komu inn á í 30 mínútur í gær eftir að hafa misst af síðasta leik. Kjartan (Henry Finnbogason), Haukur (Heiðar Hauksson), Gunnar Þór (Gunnarsson) og Anri Ólafs eru fjórir öflugir leikmenn sem eru í meiðslum svo við þurfum bara að halda áfram að ná í stig."

KR heimsækir ÍBV á mánudag og Gary bíður spenntur eftir að mæta landa sínum David James.

,,Auðvitað, hann er goðsögn. Ég hef horft á hann í Match of the day síðan ég var átta ára og þar hefur hann verið að verja frá bestu framherjum í heimi. Hann spilaði mjög oft með enska landsliðinu og hefur spilað á stórmótum alla sína ævi. Það þarf ekki að segja að meira um hann, hann hefur séð þetta allt saman. Spurningin núna er hvort að ég geti skorað framhjá honum og þessu mikla hári sem hann er með," sagði Gary léttur að lokum.
Slapp
banner
banner