Ingólfur Þórarinsson, leikmaður Selfoss, telur að á góðum degi geti liðið unnið öll lið deildarinnar. Selfoss vann nauman sigur á Víkingi R. á útivelli í 1. deildinni í dag þrátt fyrir að heimamenn hafi stjórnað leiknum stærsta hluta.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 2 Selfoss
„Víkingar voru mjög góðir í þessum leik og erfiðir en við vorum þéttir. Þetta kallast vinnusigur held ég. Við vorum að hlaupa og vorum duglegir þó ekki hafi gengið vel að spila. Eitt tækifæri getur breytt leikjum," sagði Ingó eftir leikinn.
Hann kom Selfossi í 1-0 þvert gegn gangi leiksins en það mark var glæsilegt.
„Ég keypti mér nýja skó í dag og ákvað að prófa að spila í þeim, tók sénsinn á hælsærinu. Þetta var held ég fyrsta snertingin mín í leiknum."
„Við vorum í raun heppnir á köflum í þessum leik að ná þremur stigum. Baráttan skilaði þessu, svo verðum við að bæta okkur í fótbolta."
Miklar breytingar eru á Selfossliðinu frá því í fyrra.
„Mórallinn er góður en það fóru náttúrulega allir frá því í fyrra. Margir ungir sem fengu fá tækifæri í fyrra eru að stíga sín fyrstu skref núna," sagði Ingólfur en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.





















