Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 17. maí 2013 05:55
Sebastían Sævarsson Meyer
Ítalía - Leikir helgarinnar: Lokaumferðin
Um helgina fer fram lokaumferðin í Serie A á Ítalíu og fara flestir leikir fram á sunnudaginn. Einn leikur er þó á dagskrá á morgun þegar meistararnir í Juventus heimsækja Sampdoria.

Fallbaráttan er líka ráðin en Palermo, Siena og Pescara munu falla niður í Serie B. Eina baráttan er um sæti í Evrópukeppnum fyrir næstu leiktíð.

AC Milan á bestu möguleika á sæti í undankeppni Meistaradeildarinnar en liðið mætir Siena á sunnudagskvöld. Fiorentina er tveimur stigum á eftir AC Milan í fjórða sætinu og heimsækir Pescara á sama tíma.

Udinese er í fimmta og síðasta sæti sem gefur þátttökurétt í Evrópudeildina og mætir Inter. Lazio vonast að Udinese misstígi sig á San Siro því með sigri gegn Cagliari myndi Lazio lyfta sér upp fyrir Udinese ef Udinese tapar fyrir Inter.

Roma og Inter eiga enga möguleika á evrópusæti í deildinni. Roma getur þó unnið sæti í Evrópudeildinni með sigri á Lazio í úrslitaleik ítalska bikarsins síðar í mánuðinum.

Laugardagur:
18:45 Sampdoria - Juventus

Sunnudagur:
13:00 Atalanta - Chievo
13:00 Bologna - Genoa
18:45 Roma - Napoli
18:45 Cagliari - Lazio
18:45 Inter - Udinese
18:45 Palermo - Parma
18:45 Pescara - Fiorentina
18:45 Siena - AC Milan
18:45 Torino - Catania
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner
banner