Jürgen Klinsmann, þjálfari bandaríska landsliðsins, heldur í vonina um að Aron Jóhannsson ákveði að leika fyrir hönd Bandaríkjanna.
Aron hefur enn ekki leikið fyrir íslenska landsliðið en hann fæddist í Alabama-fylki og á því möguleika á að leika fyrir hönd Bandaríkjanna.
Hann átti frábært tímabil með AGF í Danmörku í fyrra og gekk hann síðan til liðs við AZ Alkmaar í Hollandi í janúar þar sem hann hefur skorað þrjú mörk í fjórum leikjum.
Hann hefur áður verið kallaður í landsliðshóp Íslands í undankeppni HM í oktbóber en varð að draga sig úr hópnum vegna hnémeiðsla. Um leið og leikið er fyrir A-landslið ertu bundinn þeirri þjóð til æviloka. Stendur hann því frammi fyrir erfiðri ákvörðun.
Bandaríkjamenn telja sig líklega til að landa leikmanninum og vill Klinsmann ólmur fá hann til liðs við sig.
,,Við fylgjumst vel með Aroni Jóhannssyni, sem spilar nú með Jozy Altidore hjá Alkmaar og er að ná sér af meiðslum," sagði Klinsmann.
,,Hann er með tvöfalt ríkisfang, íslenskt og bandarískt. Við viljum fá hann til okkar fljótlega."



