Roberto Mancini er ný búinn að missa vinnuna hjá Manchester City og þegar farinn að leita sér að nýju starfi. Nú hefur Ítalinn ekki útilokað að snúa aftur í heimalandið.
Mancini hefur verið orðaður við þjálfarastöðu Monaco, Paris Saint-Germain og nú nýlega bættist Napoli við.
Mancini hefur verið orðaður við þjálfarastöðu Monaco, Paris Saint-Germain og nú nýlega bættist Napoli við.
Framtíð Walter Mazzarri, núverandi þjálfara Napoli, er í óvissu þar sem samningur hans rennur út í sumar. Mancini er því orðaður sem næsti þjálfari liðsins en hann sást nýlega í Napoli.
,,Napoli er frábært lið sem hefur frábæran þjálfara," sagði Mancini.
,,Ég á bekknum hjá Napoli? Í mínu starfi skal aldrei segja aldrei. En ég er hér vegna persónulegra ástæðna og ekki til að hitta De Laurentiis (forseta Napoli)."




