Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, var grautfúll eftir að liðið tapaði fyrir Atletico Madrid í úrslitaleik spænska Konungsbikarsins í kvöld og segir að þetta hafi verið hans versta tímabil á ferlinum.
Atletico Madrid hafði betur 2-1 eftir framlengdan leik sem þýðir að Real Madrid lýkur tímabilinu án titils. Þetta er fyrsta titlalausa tímabil Mourinho síðan 2002.
Mikill hiti var í leiknum og var Mourinho sendur upp í stúku fyrir mótmæli í seinni hálfleik. Í framlengingunni fékk síðan Cristiano Ronaldo rautt spjald.
,,Þegar við vinnum þá er það leikmönnunum að þakka en þegar við töpum þá er það mér að kenna. Enginn annar gerir mistök," sagði Mourinho pirraður eftir leikinn.
,,Þetta tímabil var misheppnað en fyrstu tvö tímabilin voru árangursrík. En þetta er versta tímabilið mitt á ferlinum."
Framtíð Mourinho er í mikilli óvissu en hann hefur verið orðaður við endurkomu til Chelsea. Þó hefur hann ekkert rætt um framtíð sína við Real Madrid.
,,Ég er með samning sem gildir enn í þrjú ár. Ég hef ekki enn talað við forsetann um framtíðina," sagði hann að lokum.




