Phil Neville, fyrirliði Everton, segir að David Beckham verði sárt saknað og hans verði best minnst fyrir öll sín afrek á fótboltavellinum.
Beckham tilkynnti í gær að hann muni leggja skóna á hilluna eftir afar farsælan feril þegar tímabilinu með Paris Saint-Germain er lokið.
Beckham tilkynnti í gær að hann muni leggja skóna á hilluna eftir afar farsælan feril þegar tímabilinu með Paris Saint-Germain er lokið.
Beckham hefur komið víða að á ferli sínum og meðal annars unnið tíu meistaratitla í fjórum mismunandi löndum.
,,Við ættum að fagna svo frábærum fótboltamanni, stórkostlegri persónu og einum sem hefur borið hróður þjóðar sinnar, ekki bara á fótboltavellinum," sagði Neville.
,,En hans verður sennilega best minnst fyrir það sem hann gerði á fótboltavellinum. Á ferlinum spilaði hann fyrir Manchester United, LA Galaxy, Real Madrid, AC Milan og Paris Saint-Germain. Það eru stærstu félögin í fótboltaheiminum."
,,Hann fór ekki til þessara félaga til að gegna litlu hlutverki. Hann hefur farið til þessara félaga og haft mikil áhrif. Hann er æðislegur fótboltamaður og hans verður sárt saknað."




